Fyrirtækið

Varma er framleitt af fyrirtækinu Glófa ehf., sem er stærsti framleiðandi prjónavöru á Íslandi  Aðal vörumerki fyrirtækisins er Varma The warmth of Iceland, ásamt hönnunalínunni Blik.Eigendur Glófa eru Logi A. Guðjónsson framkvæmdastjóri og Páll Kr. Pálsson stjórnarformaður og eiga þeir fyrirtækið til helminga.

 

Prjónavara úr íslenskri ull

Helstu framleiðsluvörur fyrirtækisins eru sokkar, vettlingar, húfur, hárbönd, treflar og sjöl, ásamt  allskyns flíkum úr íslenskri ull, einkum slám, peysum og kápum. Einnig býður Glófi vörur úr íslensku lambskinni. Glófi sér einnig um markaðssetningu og sölu á Álafoss og Alafoss Interior teppum fyrir Ístex í Mosfellsbæ.

 

Góð vara úr íslensku hráefni

Markmið Glófa er að framleiða góða vöru úr gæða hráefni á hagstæðan og umhverfisvænan hátt. Einnig leggur fyrirtækið áherslu á að viðhalda góðum rekstri, stuðla að vexti og hagkvæmni í framleiðslu, ásamt markvissri markaðssetningu og sölu.

Eigin vörulína, sérpantanir og samvinna
Glófi leggur áherslu á hönnun, þróun og framleiðslu á hágæða vörum úr ull og er  íslensk ull meginuppistaðan í framleiðslu fyrirtækisins.  Fyrirtækið framleiðir eigin vörulínu undir nafninu Varma og hönnunarlínu sem kallast Blik . Einnig framleiðir Glófi fyrir aðra, einkum hönnuði og tískuverslanir ásamt því að bjóða uppá sérpantanir og sérmerkta vöru fyrir félagasamtök, íþróttafélög og fyrirtæki.

 

Vöruþróun

Eigendur Glófa hafa gætt þess að vera stöðugt í vöruþróun. Fyrirtækið hefur vakandi auga fyrir nýjungum og stöðugt er unnið við að endurmóta vöruframboð fyrirtækisins og bæta inn í vörulínur þess.

 

Prjónahönnun og efnisþróun

Glófi hefur unnið með ýmsum hönnuðum að þróun nýrra vara. Prjónalínan Blik er afrakstur samstarfs Glófa og Laufeyjar Jónasdóttur hönnuðar. Blik samanstendur af sextán vélprjónuðum flíkum og aukahlutum undir áhrifum frá þjóðsögunni um Þóruhólma. 

Íslensk framleiðsla úr íslensku hráefni

Mörg íslensk fyrirtæki framleiða vörur úr erlendu bandi á láglaunasvæðum erlendis. Oft er reynt er að líkja eftir sérstöðu íslensku ullarvaranna. Þetta sýnir að íslenskar ullarvörur, bæði mynstur og áferð, hafa ákveðna sérstöðu.

Glófi leggur áherslu á að þróa og nýta íslenska ull í hágæða íslenska vöru og vera trú uppruna okkar, enda gæði íslensku ullarinnar einstök.