Þjónusta
Glófi ehf., hefur ávallt kappkostað að veita viðskiptavinum sínum sem allra besta þjónustu, hvort sem um er að ræða verslanir, fyrirtæki, hönnuði eða aðra sem leita eftir þjónustu fyrirtækisins. Þjónustan nær til víðtæks sölu- og dreifingarnets okkar ásamt sértækri þjónustu við hönnuði, sérpantanir og sérmerkingu á vörum fyrir félagasamtök, íþróttafélög og fyrirtæki.
Sala og pantanir
Vörur fyrirtækisins eru eingöngu seldar í heildsölu til verslana og fyrirtækja. Flestar vörur Glófa eru lagervörur og afgreiddar eins fljót og unnt er eftir pöntun. Vörur sem ekki eru lagervörur eru afgreiddar samkvæmt samkomulagi.
Öllum vörum er dreift frítt til viðskiptavina á Stór-Reykjavíkursvæðinu og á Akureyri. Vörum út á land er komið til flutningsaðila samkvæmt óskum viðskiptavina.
Pantanir og fyrirspurnir: