Sjálfbærni
Íslensk ull – með Íslendingum frá landnámi
Grunnur starfsemi okkar, íslenska ullin, hefur þróast í 1100 ár í köldu og norrænu loftslagi og býr því yfir einstökum eiginleikum. Ullin sem af því hlýst er létt og hrindir frá sér vatni með framúrskarandi hitaeinangrun og öndunargetu.
Kindurnar ganga frjálsar á beit á sumrin og lifa aðallega á villtu grasi.
Einstakleiki íslensku ullarinnar felst í því að hún skiptist í trefjar sem kallast tog og þel. Aðeins örfáar af hundruðum sauðfjárkynja sem eru til í heiminum í dag hafa slíka tvískipta hárbyggingu sem skilar sér í framúrskarandi einangrunareiginleikum.
Um 500.000 kindur eru til á Íslandi og fylgst er vel með velferð þeirra og undirbúningi ullarinnar. Rúningur er mikilvægur hluti af velferð þeirra og fyrir flestar bújarðir fer þetta fram á haustin og vorin.
Birgðakeðja
Framleiðsluferlið fyrir ullargarn er eins umhverfisvænt og mögulegt er, til að varðveita það sem ullin stendur fyrir. Gufu frá jarðhita er aðallega notuð sem orkugjafi í framleiðslu á íslensku ullargarni. Þegar ullin er þvegin er notkun efna og hreinsiefna haldið í algjöru lágmarki til að tryggja að náttúruleg fita tapist ekki og að ullin haldi náttúrulegum hlýjum, léttum og vatnsfráhrindandi eiginleikum sínum. Engu að síður vinnum við stöðugt að því að bæta áferð og mýkt ullarinnar án þess að tapa því sem ullin stendur fyrir.
